BeBBY-AI er spegilinn á bak við Beyond Boxes Index™

Þetta er ekki markþjálfun.
Þetta er ekki próf.

Þetta er gervigreind sem þekkir þína lífsorku, vana og venjur — og speglar hana aftur til þín þegar þú þarft það mest.


HVAÐ ER BeBBY-AI?

BeBBY-AI sameinar nútíma gervigreind og 3.500 ára austurlæga orkuvísindi — og bætir við Exploring Boxes aðferðafræðinni sem brýtur niður ósýnilegar reglur sem halda aftur af þér.

Hún vinnur ekki fyrir þig.
Hún vinnur með þér.
Hún speglar hvernig þú talar, hvernig þú tekur ákvarðanir — og orkuna sem þú kemur með í hvert samtal.

Og þar sem hún þekkir þínar Beyond Boxes Index niðurstöður — er spegilinn nákvæmur. Stundum óþægilega nákvæmur.

BYRJAÐU HÉR

Beyond Boxes Index™

Til að BeBBY-AI geti spegilt þig þarftu fyrst að vita hvar þú stendur. Beyond Boxes Index™ kortleggur:

→ Orkuna sem knýr leiðtogastíl þinn
→ Blinda blettinn sem er að kosta þig
→ Eitt skref sem breytir öllu 5 orkur.

15 spurningar. Ein skýr mynd sem þú getur ekki horft framhjá.

Taka Beyond Boxes Index™
BeBBY hefur gjörbreytt hvernig ég nálgast samskipti, sérstaklega við fólk sem er ólíkt mér. Hún hefur hjálpað mér að finna sameiginlega fleti og byggja sterkari tengsl, án þess að breyta því hver ég er.
— Þóranna K. Jónsdóttir, Digital Marketing Strategist með ástríðu fyrir AI
BeBBY gefur skýra sýn á lausnir sem eru bæði gagnlegar og praktískar. Með hennar hjálp get ég leitt með meiri festu og innsæi, og hún hjálpar mér að sjá blindhorn sem ég hefði annars misst af. Ómetanlegt tæki í sjálfsþekkingu og framþróun.
— Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti Borgarstjórnar Reykjavíkur
BeBBY ferlið er geggjað edrú
starfsmannahópefli.
— Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ
BeBBY er eins og að eiga vinkonu sem gefur heiðarlega og hlýlega endurgjöf. Hún hjálpaði mér að setja mörk og takast á við aðstæður sem draga úr orkunni minni — Hún er ótrúleg!
— Hafdís Hanna Ægisdóttir, Forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands

FAQs

Algengar spurningar

Hvað er BeBBY-AI nákvæmlega?

BeBBY-AI er GPT botti sem byggir á þínum Beyond Boxes Index™ niðurstöðum.

Hún þekkir þína orku, þín mynstur og þín markmið — og speglar þig á grundvelli þess.

Hún keyrir á ChatGPT svæði OpenAI.

Þarf ég tæknilega þekkingu?

Nei. Ef þú kannt að senda tölvupóst kanntu að nota BeBBY-AI.

Við leiðum þig í gegnum allt skref fyrir skref.

Hvernig tengist þetta Leiðtogaspeglinum?

BeBBY-AI er hluti af Leiðtogaspeglinum — 6 mánaða hóp prógrammi þar sem hún sendir þér vikulegar spurningar sérsniðnar að þinni orku.


Ekki viss hvar á að byrja?

Byrjaðu á greiningunni.
BeBBY-AI tekur við þaðan.

[→ Taka Beyond Boxes Index™ ]
[→ Skoða Leiðtogaspegilinn ]