Þú veist að eitthvað er ekki alveg eins og að það á að vera… þú bara getur ekki sett fingur á það ennþá.
Það er nákvæmlega það sem þessi vinna snýst um
Ég heiti Rúna Magnúsdóttir.
Ég vinn með leiðtogum, stjórnum og fyrirtækjum sem vilja meira en bara betri árangur — þau vilja skýrari hugsun, sterkari ákvarðanir og menningu sem raunverulega virkar.
Síðan 2007 hef ég verið að hjálpa fólki að sjá það sem það er of nálægt til að sjá. Boxin sem móta hegðun, vana og venjur.
Myndirnar sem við köllum persónuleika. Orkuna sem fer í felur — og kostar meira en við gerum okkur grein fyrir.
→ Ég tala beint.
→ Ég nota húmor þegar það á við.
→ Og ég segi sannleikann — jafnvel þegar hann er óþægilegur.
Af því að þar byrjar raunveruleg breyting.
Það er ástæðan fyrir því að fólk kemur aftur.
Þrjár þjónustuleiðir
FYRIRLESTRAR
Fyrirlestrar sem skapa sameiginlegt tungumál - og það sem situr eftir í huga fólks löngu eftir viðburðinn.
BEYOND BOXES INDEX™
Greiningartól sem kortleggur hvernig þú leiðir — orkan þín, blindi bletturinn og eitt skref sem breytir öllu.
VINNA MEÐ MÉR
Fyrir þá sem vilja fara dýpra með 1:1
Takmarkaður fjöldi viðskiptavina á ári.
“Rúna leiftra í frásögn en skilur jafnframt eftir verulegt innihald. Maður hugsar um það sem hún sagði löngu eftir að viðburðinum lýkur”
Karl Friðriksson, stjórnarformaður Framtíðarseturs Íslands
Hvað segja viðskiptavinirnir um Rúnu?
“Lífsorkuprófið er afar athyglisverð leið til að skilja betur styrkleika og náttúrulegt flæði stjórnar — hvað þarf að hafa varann á og hvar heildarstyrkleikar liggja.”
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fyrrverandi forseti Borgarstjórnar Reykjavíkur
"Fyrirlesturinn #NoMoreBoxes með Rúnu opnaði á glænýjar umræður um boxin sem við setjum okkur sjálf og aðra í. Sú umræða hefur gert okkur meðvitaðri um eigin hegðun."
~ Lisa Vokes-Pierre | VP of Global Business Services & Director of Global Process Development,Össur
Viðurkenningar